Skólastarf vorannar hefur verið blómlegt. Nemendur hafa tekið þátt í fjölda verkefna, víðsvegar um bæjarfélagið. Þar má nefna spilamennsku fyrir félagasamtök og kirkjuna, tónleikar á Skelinni - barnamenningarhátíð Suðurnesjabæjar, sem og tónfundi. Nemendur tóku einnig þátt í Hljómanótt sem er samstarfsverkefni rytmískra deilda Listaskóla Mosfellsbæjar, Tónlistarskóla Garðabæjar, Tónlistarskólans í Garði, Tónlistarskólans í Reykjanesbæ og Tónlistarskólans í Hafnarfirði.
Fimm nemendur þreyttu áfangapróf í vor og óskum við þeim til hamingju með áfangann. Skólaárinu lauk svo með vortónleikaviku þar sem haldnir voru fernir vortónleikar. Nemendur stóðu sig með prýði og hafa verið sér og skólanum til mikils sóma.
Tónlistarskólinn þakkar kærlega fyrir frábæran vetur. Njótið sumarsins og sjáumst hress og kát þegar kennsla hefst þriðjudaginn 25. ágúst.
|
Garðbraut 69 A | 250 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3150 Netfang: tonogard@sudurnesjabaer.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3150 / tonogard@sudurnesjabaer.is