Skólastarf fellur niður í dag frá kl.16 og á morgun föstudaginn 9.febrúar

Skert starfsemi Suðurnesjabæjar

 Í ljósi þess að heitt vatn er farið á Suðurnesjum þarf að grípa til lokana víða í starfsemi sveitarfélagsins og þar til varalögn kemst í gagnið.Gera má ráð fyrir að heitt vatn haldist á a.m.k. hluta af bænum fram eftir nóttu.

Fimmtudagur 8. febrúar

·         Sundlaugum hefur verið lokað

·         Íþróttamiðstöðvum hefur verið lokað

·         Skólar og félagsmiðstöðvar loka kl.17

·         Leik- og grunnskólar ásamt tónlistarskólum starfa til kl. 16:00 að öllu óbreyttu.

·         Ráðhús lokar kl. 16:00

Föstudagur 9. febrúar (og á meðan ekki er heitt vatn á sveitarfélaginu)

·         Allt skólastarf í leik- og grunnskólum auk tónlistarskólum fellur niður.

·         Öll íþróttamannvirki  og sundlaugar verða lokuð.

·         Starfsemi Velferðarsviðs verður með eftirfarandi hætti:

o   Hefðbundin starfsemi í sérstöku búsetuúrræði að Lækjamótum

o   Björgin í Reykjanesbæ verður lokuð – opið í Lautinni

o   Hæfingarstöðin í Reykjanesbæ – verður lokuð

o   Dagdvöl og félagsstarf aldraðra í Miðhúsum og í Auðarstofu – verður lokuð

o   Heima- og stuðningsþjónusta verður skert en haldið verður uppi nauðsynlegri þjónustu.

·         Ráðhús – verða lokuð, hægt að hringja í síma 425-3000 eða senda tölvupóst á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is