Viðburðarík vika 13. - 19. apríl

Vikan 13. - 19. apríl var viðburðarrík hjá okkur í tónlistarskólanum.  

Þriðjudaginn 14. apríl fluttu nokkrir nemendur tónlistarskólans gestum Garðskagavita söguna af Skeljaskrímslinu í tali, tónum og óhljóðum. Viðburðurinn var hluti af Skelinni, barnamenningarhátíð Suðurnesjabæjar. Vel var mætt á viðburðinn og stóðu nemendur sig einstaklega vel.  

Föstudaginn 17. apríl tók tónlistarskólinn þátt í dagskrá við úthlutun styrkja úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar, þar sem Elísa Tan Doro-on flutti tónlist á píanó, munnhörpu og söng jafnframt.  

Elísa Tan Doro-on var jafnframt fulltrúi tónlistarskólans á Svæðistónleikum Nótunnar - uppskeruhátíð tónlistarskóla 2026. Tónleikarnir fóru fram í Salnum, Kópavogi, laugardaginn 18. apríl. Hún flutti þar lagið Piano Man eftir Billy Joel þar sem hún spilaði á píanó, munnhörpu og söng. Atriðið var sérlega vel heppnað, Elísa stóð sig með stakri prýði og má hún vera stolt af sínum flutningi.